but yes but no but yes but no..


Þetta er nefnilega ekkert leiðinlegur tími, og kennarinn alveg draumur í dós.. einhvern veginn fæ ég mig ekki til að horfa á hann, hlusta, meðtaka og skrifa. Ég reyni, ég reyni, og er nú alveg búin að glósa heila síðu. Það er samt eins og hugsunin segi bara: “stopp manstu hvað það var gaman um helgina? Hugsaðu um það”. Hmm ok you´re the boss. Það var nebblega brjálað gaman um helgina, ég kynnt fyrir nýjungum í íslensku samfélagi. Mig minnir svo sterklega að Idol partýið á föstudaginn hjá systrunum fræknu hafi verið mitt fyrsta alvöru idol party. Og ég komst að því að það er mun skemmtilegra að gagnrýna í hópi fólks heldur en ein heima ;) plús að mér finnst þetta bara ekkert voða skemmtileg keppni en það er hún glæsta guðrún lára sem heldur mér við tækið því hún er sko best.is og ég m.a.s. kaus hana 2svar! Guðrún all the way :D Já ég og Erlingur fengum semsagt þetta kostaboð að sitja í idolpartýi á fjólugötunni í hópi glæstra kvenna og skemmtilegra. Eftir vangaveltur um lífið, erfðir og keppnina var stefnan tekin á kúltúr þar fengum ég dísa og ella gella analíseringu á mh-status í klæðaburði.. og síðan var stutt stopp á kofanum.. þess má geta að ferðin niðrí bæ og heim úr bænum fara á topp fimm lista, þ.e.a.s ef ég ætti topp fimm lista yfir bæjar- og heimferðir...
Jahá, vaknaði á laugardeginum alveg fílelfd til að fara með mömmu minni að versla tihihi, en náði að velja á konuna heví kúl jakka .. ji, búðin hringsnérist, með fullri virðingu fyrir konunum þarna inni leið mér eins og í nautaati.. ég var alltaf að skjóta mér undan blóðþyrstum konum í leit að hamingjunni á slá :p laugardagurinn sjálfur er í móðu nema hvað að ég fór í smáralindina þunn.. +0( +0( +0( ég mótmæli því m.a.s. edrú í góðu standi.. og vá hvað ég sá eftir að hafa lofað mér í party um kvöldið. Þar komum við að annarri nýjung helgarinnar, áætlaður ferðamáti til og frá teitinu.. hihi auðvitað fann ég aukaorku til að koma mér í söngteitið.. sem varð svo ekkert söngteiti fyrir utan einokun ákveðinnar örnu og ákveðins haffa á míkrófóni vegna þess hve bæld við hin vorum, ég og valdi tókum samt þann pól í hæðina að við værum einfaldlega of posh og kúl til að taka þátt. Summi kenndi okkur creisí skemmtilegan drykkjuleik og var markinu náð áður en hlaupa þurfti til að ná strætisvagni. Hvort að þetta var ekki bara með skemmtilegri tíma kvöldsins, svei mér þá. Við skiptumst á að misnota breezer flöskuna mína.. báðum fólk að taka mynd af okkur á útlensku eftir að hafa verið með þvílík látalæti á íslensku.. þetta er svona algert “u had to be there” dæmi, u boys know what i´m talking about..og þetta færi eflaust líka á topp fimm listann ef hann væri til, held ég ætti bara að búa hann til.. jahá allavega deili með ykkur myndum hér að ofan :p Eftir brjálaða vitleysu í bænum leitaði ég mér hælis í hundrað og einum.. og sunnudagsmorguninn var nú ansi skrautlegur á mínum mælikvarða hvernig sunnudagsmorgnar ættu að vera...
Absoloutely fabulous weekend!! Patsy og edina eru örugglega stoltar af vitleysunni.. but yes but no but yes .. but i´m a lAAAdy.. i do lAAAdy things..
Fyrir um 5 tímum fór flugvél í loftið frá Osló sem innihélt eitt stykki jannicke sæbo, þessi vél er eflaust lent á heathrow og daman búin að skipta um vél sem er á leið sinni til LA California! J oh my gosh.. giiiirl i really did think of you at 1155 your time today :p


1 Comments:
At 9:02 f.h.,
Nafnlaus said…
Þú ert sæt stelpa ;) vinkona þín sem snert hefur hreim!!
Skrifa ummæli
<< Home