ísprinsessan með súkkulaðifötuna

samkynshneygð

þriðjudagur, janúar 24, 2006

glamúr helgi sem segir sex!!

Eftir langan og strangan.. og lúmkst æðislegan föstudag, þ.e. eftir fræðslufund með búbbu og tíma í inngangi í líffræðilegri mannfræði fór ég með dísu og hélt áfram leið minni að hinum fullkomna kvenleika ;p and went and got my eyebrows done!! I felt fabulous! Eftir eins tíma svefn nóttina áður var ég ansi lúin og eftir ferð í smáralindina ákvað ég að slaka á heima og leyfa kvöldinu að ráðast, og það fékk aldeilis að ráðast. Eftir msn chat við gott fólk útí heimi og að heiman lét lingur í sér heyra og við skötuhjúin fengum okkur nokkra létta heima hjá honum, ætluðum svo að rölta niðrí bæ og taka einn eða tvo létta dansa.. en eins og oft áður létum við til leiðast og í heitum umræðum um fólk sem tekur sér tíma í sínu dagslega amstri til að vera á móti okkur og skrifar um það opinbera greinagerð var stefnan ómeðvitað tekin á cozy í einn bjór, þar fór gamanið fyrst að verða skrítið... á meðan lingur lét sig hverfa á klóstið fór ég á barinn og sá þar frekar skelkaðan og umkomulausan norðmann, Leif að nafni, eins góð og við erum tókum við hann að okkur og drengurinn reynist bara svona assgoti góður! :D eftir ekki svo langan tíma ávarpar mig stelpa, sem ég kýs að kalla Hildi, og spyr mig hvort ég sé útlenskt, eftir vangaveltur um hvort að vestmannaeyjar væru útlönd kemur hún og tyllir sér við hlið mér. Vinstri hendin tekur strax stefnuna á bakið á mér og fær það strokur upp og niður og út og suður. Hún kynnir sig og eftir 3 tilraunir virðist hún ætla að muna nöfnin okkar.. ágengnin er að fara með hana og lýsir hún sí og æ ánægju sinni yfir að hafa hitt svona yndislegt og venjulegt fólk. Þetta leggst svona ágætlega í okkur svo hún fær að sitja lengur. Ég spyr Hildi hvort hún sé samkynhneigð, já þokkalega samkynhneigð hún Hildur.. langaði bara að vita.. forvitin ég alltaf.. vildi ég koma heim með henni, nei ég legg það ekki í vana minn eftir korters kynni en enn situr hún og ágengnin verður æ meiri.. hahaha hún meira segja notaði á mig “gloss pikklínuna” ég hélt að hún hefði fari úr tísku þegar ég notaði hana á guðrúnu á menntaskólaballinu á gauknum?! En svo er víst ekki og kannski skammarlegt að segja að hún virkaði hjá henni. En góð hún samt ;p Nú þurfti að fara að sýna Leifi trashy dansbar svo stefnan var tekin á glaumbóinn haha þar er sko hægt að hlæja! Má taka það fram að alla leiðina þangað stóð heimboðið frá hildi til boða og drengirnir máttu meira að segja fylgja með, hún myndi meira að segja splæsa í taxann, en nei stefnan var tekin á dans. Á meðan birna og leifur fara á klóstið fara hildur og lingur á dansgólfið, og hildur gefur lingi undir fótinn .. i know what u are thinking.. whaaat? Allavega komum við leifur aftur og þá er fókusinn aftur á mér þangað til ég forða mér á barinn, sé ég ekki stelpuna setjast við hliðina á gaur, vinstri höndin á bakið og daðrið komið á fullt! Það sem ég heyrði var bara eins og kópía af viðreynsla hinnar samkynhneigðu hildar við mig hálftíma áður! Mér fannst þetta einstaklega fyndið og stóð í hláturskasti yfir aumingjans hildi og brosti útað eyrum að erlingi og leifi sem áttu sko dansgólfið! Eftir að hafa hlegið nægju mína fer ég til hennar og bið hana vinsamlegast um að eyða númerinu mínu því ég legði það ekki í vana minn að gefa það út og sæi eftir því! Hún hélt nú ekki,henni þætti svo vænt um mig! Eftir að hafa sleppt orðinu er tungan komin oní kok á gaurnum og þegar látunum linnir aftur biður hún hann um númerið hans.. hmm nú voru góð ráð dýr svo ég halla mér að gaurnum og bið hann um að eyða mínu! Neihei hún sá sko í gegnum það! Svo ég segi allt í lagi en elsku hildur má ég senda hjá þér sms .. haha hún féll kylliflöt í því hvarf númerið mitt.. síðan bauð hún gaurnum heim í íbúðina sem hafði staðið mér til boða og þau leiddust í burtu! Haha frábært! Mér leið svona eins og alltíeinu ætti að koma gaur hlæjandi að mér og öskra PUNKED!! Mér var allavega skemmt og ég fékk skuldbindingarlausasta koss í geimi!


Vaknaði á laugardag til að fara að gera mig til fyrir glamúr party hjá dísu sem nú er þekkt í skemmtanabransanum sem dísa diva!! Ótrúlega fyndið að örugglega svona 80% af gullkonum sem mættu í teitið voru ekki tilbúnar og eyddu allt upp í 2 tímum á baðherberginu að dúllast e-ð! Ég var totally game i þetta glamúr þema og með hjálp dísu og höllu var vippað á glimmer og gerviaugnhárum! Partíið var skemmtilegt og eftir spjall og drykkerí var ákveðið að flýta fyrir hlutunum og farið í drykkjuleik, en skemmtilega old fashioned! Og alltaf gaman hvað vinkonurnar leyna á sér :D síðan var stefnan tekin á hinn óviðjafnalega hverfis! Surprisingly fun hehe verður bara að vera með rétta attitjúdið sko.. síðan á kaffibarinn .. ég gef kvöldinu mjög góða einkunn og geggjað að fara loksins á gelludjamm heimferðin var nú ekki eins og best var á kosið en ég og dísa komumst heilar heim og eftir smá tjatt kúrðum við okkur í svefn!

Hvað er fólk að hringja um og stutt eftir hádegi á sunnudegi, silja og lingur ættuð þið ekki að vita betur ha??? I ask myself!
En óóóótrúlega góður sunnudagur, ég keyrði heim af ungliðafundi með sól í hjarta og söng á vörum!! Það var foreldrakvöld og 50 manns mættu í húsið! Svo hjartahlýjandi tilfinning að sjá foreldra stíga út úr skápnum með börnum sínum, þau mega vera stolt hvert eitt og einasta! Allt tókst svo vel og það er eftir svona kvöld að ég man af hverju ég er að þessu! Oh bros bros bros!! Líka krakkarnir eru svo mikil æði.. þykir svo vænt um þetta starf! Foreldrarnir koma að þakka okkur kærlega og það skín úr augum þeirra að þau meina það svo!
FRÁBÆRT!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home