velunnarar volume 1
þetta er rosana! svaka skutla eins og sést hér! hún er fellow anthropology student! geggjað skemmtileg stelpa! fíla húmorinn hennar.. það er svona stríðnishúmor í stelpunni.. allavega í minn garð ;p hún er doldið eins og stóra systir mín, reddar mér glósum og upplýsingum og passar uppá .. hmm eða reynir að passa uppá að ég mæti í tíma .. ;) ætlum að vera geeegjað duglegar þessa önn sko!
þetta er silja! hún er æði! málefnaleg í tali og gjörðum, góð stelpa, geggjað sæt, kyssir vel. gallinn við silju er að hún metur sjálfa sig ekki að verðleikum!!! hún sem er annars svo gáfuð! ég held því fram að mar komist ansi langt á egóinu! láttu á það reyna silja mhmm
haha elín er kúlisti og ein þeirra sem ég þekki sem leynir alveg svakalega á sér.. hún á sínar villtu hliðar og hefur gaman að koma vinkonum sínum á óvart.. hún er næsta davida beckham ;)
gummi! gummi beibíkeiks! gummi var með mér í grunnskóla!! en við kynntumst ekkert áður en við urðum gay ;p hann er æði og frábær .. það sem minnir mig á gumma er oh my goshhhh.... og david ...og aulahúmor yfirleitt.. svo er gummi líka módel sko! ;) og hann er líka góður vinur sem hægt er að tala við !! áfram þú gummi
jei :) þetta er hann óli daði, þetta er lýsandi mynd fyrir óla þegar þú ert búin að kynnast honum! doldið erfitt að komast að honum en þegar ísinn er brotinn er hann skemmtilegur og fyndinn .. :D hann er einn best klæddi strákur sem ég þekki! ætli við óli höfum ekki þróað fatasmekk okkar útfrá fyrrverandi vinnustað ;p e-ð aðeins...
halla stína fína!! hún er óttalega gul.. ;p það er plús í kladdann hjá henni að fara yfir á gulu ljósi! halla u´re crazy! það er alltaf gaman að djamma og djúsa og slúðra með höllu.. hmm sýnist á þessu að "she brings out the worst in me" en svo er ekki raunin, hún er ljúf og góð og sæt og goooood dresser!
dóra dúna :) mér þykir rosalega vænt um þessa fyrstu kærustu mína og það er ótrúlega margt creisí, skemmtilegt og leiðinlegt sem við höfum gengið í gegnum saman! haha! hún er listhneigð með meiru og ljóð hennar listasmíð sem gaman er að lesa! hún er einn sterkasti persónuleiki sem ég veit um.. ég held að seint muni e-ð buga þessa stelpu! plús hún er total skvísa! dóra, þú ert best ;)
Erlingur Óttar öðru nafni Lingerine afskaplega rosalega mikið góður vinur minn!! okkar sameiginlegu áhugamál eru t.d. stórar konur, frami sem dj (enda myndum við teymið dj-bling og slógum í gegn í okkar eina giggi mhmmm) almennur aulahúmor, háskólanám, ræktarferðir, ferðir í kaffiteríuna með skemmtilegu konunni, hugsjónastarf í kringum okkar virtu samtök! hann er óttalega rosalega fyndinn og kallar mig oft bearina! og ef ég mætti velja mér dancing queen þyrfti ég ekki að hugsa tvisvar!!
dííííííííísa!! vá elsku dísan! ef ég ætti svona stuðningsfulltrúa, þá væri það hún, ég held að enginn sé hrifnari af því að ég skuli vera gay heldur en hún!! hún fulllífsorku og bara ótrúlegur persónuleiki! hún er endalaust fyndin og endalaust hægt að tala við hana um allt og ekki neitt!! lætur mér alltaf líða vel, efast um að ég væri þessi abfab birna sem ég er í dag without her! alveg 100& einkunn dísa mín!
oh my lord þetta er alma! ölmu má finna allsstaðar þar sem e-ð málefnalegt eða skemmtilegt er að gerast! hún er félagsmálatík með meiru og er að læra stjórnmál! í tíma um daginn skildi ég hana þannig að hún hefði afneitað sínum færeyskauppruna, hún þvertók fyrir það .. en hver veit..
þetta er hún emma! emma ætlar að vera svo góð við mig í framtíðinni! emma á pottþétt eftir að verða rík, eða ríkari en hún er í dag og hún ætlar að gefa mér hliðarkort!! áfram emma! hún er doldið af gamla skólanum í hugsunarhætti en óóóótrúlega fyndin og það er hægt að gera grín og gys með henni á elliheimili allan liðlangan daginn!! og ekki bara á elliheimili! hún á fallegasta non-afkvæmi í veröldinni! hún er líka alger pæja!!
þetta er hann brynjar! :) hann er gáfaður með eindæmum og mikil innsýn sem hann hefur og gefur.. svo er hann óttalega hnyttinn og traustur!!
þetta er ingibjörg, hún er stoltasti vopnfirðingur sem ég þekki!! að hennar sögn hinn ágætasti landshluti og verð ég að trúa henni því þangað hef ég aldrei komið! en ingibjörg kemur mér alltaf til að hlæja, líka þegar hún er ekki að reyna það og líka þegar hún er pirruð! söngstundirnar á H-1num hefðu ekki verið samar án hennar! og lífið á göngunum ekki jafn kátt!! ekkert smá skemmtileg stelpa og á sætustu nöfnu í öllum heiminum og þó lengra væri leitað!! áfram ingibjörg!! p.s. þetta er EKKI lýsandi mynd fyrir ingibjörgu ;)
þetta er hún gyða, fyrrum stuðpinni á H-1 :D hún er sko rokna rokna stuðbolti sem ekki lætur vaða yfir sig og stendur með sínum!! ósköp væn stúlka og rough around the edges en það gerir gyðu einmitt að frábærri gyðu!
guðrún hlín.. gellan sem er alltaf perfect infront of the cam.. pósur eru hennar speciality híhí she can shake her groove thing og samhliða því verið öguð í því sem krefst þess.. ætli það sé ekki bara perfect combination.. ha guðrún? líður þér ekki vel? já og guðrún hlær oft í návist minni.. oft er ég ekki viss hvort að það er að eða með mér.. en .. bara bæði betra ;)
oh my gosh!! þetta er sko lýsandi mynd fyrir hana heitu foxy karen ósk!! hennar sérmerki er að koma með fyndnustu kommentin.. lífleg skot hennar gera hvaða umræðu sem er skemmtilegri! ".. i keep missing my penis..." danstaktarnir eru too die for ..og gaman er að láta hana mala ;p
það er ótrúlega gaman að hlusta á sóley tala! henni er alltaf svo mikið niðri fyrir.. allavega þegar ég er nálægt.. annars tel ég hana vænsta kvenkost fluggáfuð, með tískuvit og á eftir að enda með gráðu sem bjargar sálu þinni
vala stóð frammi fyrir allan útskriftarárganginn í MH og sagði virðulega að ef einhver þyrfti að ná í hana væri email-ið hennar vala í bala at hotmail.com ég endurtek vala í bala at hotmail.com!! haha hún kann að skemmta og kalla fram hlátur og önnur viðbrögð hún vala.. mh-ingur og holly valance impersonator!! *kiss kiss*
þetta er hún hrafnhildur! ef ykkur vantar einkaspæjara eða ljósmyndara, hafið samband við stelpuna! hún er óttalega skondin stelpa.. algert nörd í besta skilningi :) og stendur á vendipunkti í lífi sínu! hún er skemmtileg og sæt og leynir á sér..
arna er svona eins og litla systirin sem ég átti aldrei! hún er alltaf að stríða mér og gera grín að mér.. og hittir ótrúlega oft á mig á þeim stundum sem ég geri eitthvað alveg ótrúlega aulalegt.. úffhúff.. en ég er stolt af henni og þykir vænt um hana.. ótrúlega gaman að fylgjast með henni...
haffi er strákur sem ég tengi við orðið lífskraft og skemmtilegheit! það er ótrúlegt hvað kemur upp úr þessum strák.. hann er eins og brunnur .. ekki alltaf viskubrunnur.. bara svona allrahandabrunnur! hann heitir haffi dinamic í símaskránni minni einkunnarorð okkar hafa eru: let´s do this!!!
valdi er sætur! það eru allir sammála um! hans persónulega viðmót við lífið, tilveruna og mannfólkið er vert þess að skoða! ef valdi væri eitthvað annað en mannkyns þá væri hann "the spoon full of sugar" .. that makes the medicin go down!
þetta er elsa, einn af gullmolunum af H-1 num! hún gerði lífið skemmtilegra í alla staði í vinnunni alltaf full visku um stöðu mála! alltaf hægt að tjatta við elsu fram í rauðan dauðan um allt og ekki neitt og má nefna sem kosti að stelpan er gullfalleg, skemmtileg, uppfinningasöm og getur víst brugðið sér í allra kvikinda líki!
þetta er hann emma! það fyrsta sem hann sagði við mig var: "Birna?! what kind of name is that hahaha" ég sagði honum að mér væri sama hvað hann héti og í refsingar skyni hef ég kallað hann emmu ever since, og það hefur barasta loðað við hann núna í hálft ár! haha auli! en annars brjálað fyndinn gaur.. alltaf hægt að hlæja með og að honum emmu!!
den fantastiske emanuel, ef þið eruð að leita að einhverjum sem getur "strud his stuff like a pro diva" þá getiði hætt leitinni og ég skal gefa ykkur samband við þennan norksa unaðspilt!
hún er brjálaða konan mín með dauðu kettina í útilegu og ég er ísprinsessan hennar með súkkulaðifötuna.. ég held að það verði varla flóknara en það!þetta er aðeins hluti ykkar sem eiga að vera hér..
þið hin eruð ekkert síðri .. á bara ekki mynd af ykkur eða .. e-r önnur ástæða.. ég er náttla svo busy .. but don´t worry i´ll get to you
þið eruð öll best ;*
kiss kiss BANG BANG


1 Comments:
At 4:06 f.h.,
Nafnlaus said…
yes beibs...¨! hóra.. það vantar mig þarna á vinalistann þinn! jói kalli... but I luv ya anyways... kiss kiss knús
Skrifa ummæli
<< Home