ísprinsessan með súkkulaðifötuna

samkynshneygð

föstudagur, janúar 20, 2006

ekkert til að kippa sér upp við?

vá hvað ég hlakka til þegar guð kemur og tekur mig! hann ætlar sko að koma og taka hina útvöldu! ég geri mér í hugarlund að þessir útvöldu séu góðar manneskjur sem ekki hafa hjálpað aðeins sjálfum sér á lífsleiðinni og reynt að láta gott af sér leiða. ég ætla bara að segja að ég sé ein af þeim og sem betur fer fólkið í kringum mig líka svo að það verður bara ágætt við heimsendi, lifandi í guðs ríki með sínum ástvinum! voða stuð! fyndið að talsmenn hans í okkar þjóðríki íslandi boða fordóma, mannfyrirlitningu og skerðingu á mannréttindum þegna landsins! ég sit hér og veit ekki hvað ég á af mér að gera! þessa yfirlýsingu má nú finna á netmiðlum:

Við undirrituð lýsum eindregnum stuðningi við biskup Íslands, þegar hann segir að hjónaband sé sáttmáli milli eins karls og einnar konu, og teljum að nú beri að standa vörð um hina upprunalegu fjölskyldumynd og velferð fjölskyldna og barna í íslensku samfélagi. Um leið hörmum við það fráhvarf frá kristnum siðferðisgildum sem ríkistjórn Íslands sýnir með frumvarpi til laga um réttarstöðu samkynhneigðra. Frá því að þjóðin gerðist kristin, hefur hún haft fyrrnefnd siðferðisgildi sem grundvallarviðmiðun í löggjöf landsins. Að lögleiða aðra skipan er fráhvarf frá skíru og kláru boði Heilagrar ritningar og í andstöðu við siðfræði kristinnar kirkju í heild sinni.
Með tilvísun til þeirra greina frumvarpsins sem fjalla um ættleiðingar barna til para í staðfestri samvist og tæknifrjóvgun hjá konum í staðfestri samvist, þá teljum við í ljósi kristinnar grundvallarafstöðu okkar hvort tveggja vera fráleitt. Við teljum að réttur barna sé skertur með nefndu frumvarpi og samband barns við föður og móður ekki virt. Við minnum á að samkvæmt upphafsgrein Barnalaganna, nr. 76/2003, á barn rétt á að þekkja báða foreldra sína.
Breytingartillögu við frumvarpið, sem felur í sér heimild forstöðumanna trúfélaga til hjúskaparvígslu tveggja einstaklinga af sama kyni, teljum við fráleita og höfnum henni alfarið. Rök okkar eru þau sömu og áður: Hin boðaða löggjöf fer þvert gegn kristinni kenningu um hjónabandið og samband foreldra og barns.


að fólk skuli taka sér tíma í að vinna gegn mínum mannréttindum, mínu jafnrétti finnst mér sorglegt, að hópar skuli rotta sig saman og ræða um hvað ég sé syndug og ómöguleg, að ég skuli vilja gifta eða eiga börn með konu minni í framtíðinni þykir fráleitt og því ber að mótmæla opinberlega! ég verð klökk, af reiði, gremju og sorg yfir heimsku og litlum og ljótum hugarheimi þessa fólks í minn garð.. þau hafa eflaust ekkert á móti mér svo lengi sem ég held mig í mínu horni og er ekki að flagga eða auglýsa mína samkynhneigð, haldi mig bara á mottunni! það er bara ekkert nóg fyrir mig, mig langar að boða hinn hýra og glaða boðskap og helst að reyna að smita sem flesta, beint eða óbeint af þessu yndislega fagnaðarerindi samkynhneigð! að lokum langar mig að gera fólkinu greiða sem lýsti sem einstaklingar yfir stuðningi sínum og halda áfram að auglýsa þeirra (að mínu mati) forpokuðu og smánarlegu skoðanir um afstöðu sína!

Anton Ingimarsson, kt 1108595709, verslunarstjóri.
Dr. Arngrímur Jónsson, fyrrv. sóknarprestur.
Eva S. Einarsdóttir, ljósmóðir í Kópavogi.
Flóki Kristinsson, sóknarprestur á Hvanneyri.
Guðlaugur L. Aðalsteinsson, kt 2611602779,og k.h. Kolbrún B. Jónsdóttir
Guðmundur Óli Ólafsson, fyrrv. prófastur í Skálholti.
Guðmundur Pálsson, sérfræðingur í heimilislækningum.
Gústaf Níelsson, sagnfræðingur í Reykjavík,og k.h. Bergþóra Sigurbjörnsdóttir, forstjóri.
Halldór S. Gröndal, fyrrv. sóknarprestur.
Jakob Rolland, kanslari kaþólsku kirkjunnar.
Jón Oddgeir Guðmundsson, Akureyri.
Jón Valur Jensson, guðfræðingur í Reykjavík.
Jón Rafn Jóhannsson OCDS (Karmelítareglunni, kaþ. kirkjunni)
Laufey Jensdóttir, 210524-3989, húsmóðir.
Lilja Kristjánsdóttir húsmóðir, fyrrv. kennari.
Dr. Loftur R. Gissurarson, gæðastjóri OR, Mosfellsbæ.
Patrick Breen, sóknarprestur kaþólskra á Akureyri

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home