ísprinsessan með súkkulaðifötuna

samkynshneygð

miðvikudagur, janúar 25, 2006

because.. i´ve had the time of my life!!!!

Oh hvað það er yndislegt að eiga vini sem setja það ekki fyrir sig að það sé þriðjudagur og að einhver skóli sé á morgun! I love my boys!! Öl og spjall og spjall og öl! Og já singstar party á landsbyggðinni um helgina og almenningssamgönguökuferð aftur í siðmenninguna! Og ég sem hélt að ég hefði prófað það allt..

Það er líka yndislegt að vera með magnaða og lífsglaða tónlist í eyrunum gangandi um stræti borgar sinnar og finnast maður eiga hana alla! Það er enginn viðstaddur nema þú og hún og kannski raulið eða gaulið í þér sem fylgir laginu! Þú getur þrætt nýja leið heim, uppgötvað stræti og öngstræti, sæt sæt hús sem ekki er hægt annað að brosa að og vona að íbúarnir kunni að meta! Valhoppa svo seinustu metrana heim til að ná fyrir enda lagsins svo ekki þurfi að láta á repeat í 8unda skiptið ;p

Mikið þenkjandi þessa kvöldstund : )

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home