ísprinsessan með súkkulaðifötuna

samkynshneygð

föstudagur, janúar 13, 2006

trendy bitch

vá ég er búin að lifa svo skrítnu lífi síðastliðna hvað.. hmm klukkutímana .. dagana.. doldið svona out of a movie.. búin að gera stelpulegustu hluti í heimingeiminum.. í ég get ekki sagt meira því það er svo mikið leyndó leyndó og þó þetta sé mitt prívat núna er aldrei að vita að einhverjir tilvonandi PI sem tilheyra minni tilveru komist að hinu sanna um þessa bloggaddressu.. ;p svo líka er ég aldrei þessu vant ;p að leyfa huganum að vafra um í stelpumálum... ekki að það sé e-ð nýtt uppi á teningnum.. bara öflugt ímyndunarafl sem virðist leita í allar áttir .. það er doldið gaman, þangað til að ímyndunaraflið býr til langanir, þá veit ég að heilinn verður aðeins að fara að slaka á.. en ég heyrði í dag að ég væri skrítin í þessum málum og sætti mig alveg við það, enda meðvituð ákvörðun um að vera það..
annars vá er allt að komast á fullt, pride fundur #1 var í gær og ein af fyrstu tillögunum var að fundarmenn skyldu stytta mál sitt og ekki endurtaka, samt endaði fundurinn á því að vera 3 tímar... en það gerir ekkert til, samstarfsnefnd má eiga það að hún er yndisleg á sinn eiginn hátt og gaman og gott að vera með :)
gym, skóli, brainstorm fundur og stúlknaboð í dag, hugsanlegt tjútt.. kannski að ég fari og láti hana standa við loforðið um að umbreytast.. straight --> gay-as-hell.. alltaf gaman að svoleiðis..
fékk að bjóða mömmu og brósa í bíó um daginn, excellent bíóferð, narnía fær full meðmæli!
en hostel.. þvílíkur við-bjóður!! ekki fara! ég er búin að vakna síðastliðnar 2 nætur dreymandi um þessa mynd, vakna með svo óþægilega tilfinningu í líkamanum og veit að mig var að dreyma um þessa mynd en man samt eiginlega ekkert úr draumnum.. nema það að í fyrri draumnum var ég einkaspæjari sem ætlði að koma upp um starfsemina.. mamma var "my partner" og var ekki að trúa mér .. "mamma ef þú trúir mér ekki þá sver ég að ég skal aldrei vera dóttir þín framar" .. "nú jæja elskan ætli ég trúi þér ekki" ... og í seinni draumnum voru strákarnir mínir þar.. en ég man bara eftir sumarliða.. okkur leið ekki vel
já og í dag ætla ég niður á hagstofu að segja mig úr þjóðkirkjunni.. !!



0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home