
Ég ætlaði svo aldrei að stofna blogg! Alltaf verið mikið á móti þessu tjáningarformi og fundist það vera persónunjósnir að skoða annarra blogg! En eitthvað hefur breyst. Ég myndi samt ekki kalla þetta blogg heldur netdagbók, það er kannski mín eigin blekking um að ég sé eitthvað öðruvísi og hafi í raun staðist þessa freistingu að halda úti svona síðu.
Hmm annars hlakka ég til að byrja í skólanum á morgun. 20 einingar á einni önn er mjööög fínt ef það hefst.
Erlingurinn minn er í útlöndum, ekki vissi ég að það yrði svona mikil mæða ;p
Ég skal segja hvað kemur upp í minn huga, HVAÐ EF ALLAR ÞESSAR KONUR OF STELPUR VÆRU YNDÆLISLESBÍUR?
:)


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home