ísprinsessan með súkkulaðifötuna

samkynshneygð

fimmtudagur, nóvember 09, 2006

ha ha fundinn..

Við vorum spurð í tíma í HÍ um árið í umræðu um þáttinn L-word (which u all know and love) hvort að þar væri verið að gefa rétta ímynd af lesbíum, well, ofcourse not, síðan hvenær hafa þáttaráðir framleiddar með það í huga að sýna rétta mynd af mannfólki. Er það ekki eins og að spyrja lögfræðinga, vá ertu lögfræðingur, er það jafn gaman og jafn mikið af office romance eins og í ally mcbeal. Ég minnist þess nú bara orða, Carls, kærasta Debbie í amerísku þáttaröðunum queer as folk þegar skötuhjúin eru að horfa saman á lögguþátt og hún spyr hann hvort að það sé svona gaman að vera detective.. “yes if my partner looked like that”
Það verða allir fallegir í sjónvarpi.En ég verð samt að hrósa queer as folk, þrátt fyrir augljósa kroppasýningu við flest tækifæri eru aðalpersónurnar okkar ekki allar drop dead kick in the face gorgeous,
Í law and order, original, eru karlarnir sumir gamlir eða þunglamalegir en stelpurnar eru nú samt voða sætar... góðir lögfræðingar samt..

Ég og Elín ætlum að missa okkur í menningarlegum stælum í vikunni. Við ætlum að fara saman á galleríopnun, fara saman út að borða á Einar Ben og í Þjóðleikhúsið að sjá Patrekur 1,5. Kannski við ættum að taka þetta skrefi lengra? Hvernig væri að dressa sig upp í prjónaföt og 66° norður úlpu, rölta um í garðinum við Suðurgötu, svo um miðbæinn fá sér kvöldmat á Bæjarins bestu koma við á leiðinni heim og gefa öndunum en vera komnar heim fyrir hálfníu til að sjá heimildamyndina á RÚV..

Ég var að spá þegar kemur að prófum fer okkur öllum að leiðast, okkur sem eru í prófum.. því við erum í prófum og ykkur hinum því við sem erum í prófum höfum ekki tíma til að leika við ykkur. Ég segi tli að rífa okkur upp á þessum volæðistíma að við finnum hentugt húsnæði heima hjá einhverju okkur og höldum okkar eiginn dans- eða eróbikktíma.. ég veit að ég yrði góður kennari, ströng og skemmtileg . EÐA við förum í feluleik í IKEA, þvílíkir möguleikar á felustöðum. Við drögum um hver á að leita, um leið og sá fyrsti er fundinn verður hann og sá sem fann hann lið og sameinast um að finna hina.. this could go on for hours svo leikmenn yrðu örugglega orðnir svangir og orkulitlir og þá væri lítið mál að skreppa á café IKEA, fá sér ís eða kjötbollur..

I´m just sayin...

3 Comments:

  • At 1:24 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Velkomin heim!..
    erum saman bæði á lau og sun..
    en frábært..ójájá...

    kv Ingibjörg Ó

     
  • At 3:19 e.h., Blogger Baldvin Kári said…

    Jájájá! Pant vera með í feló!

     
  • At 10:48 e.h., Blogger Lingur said…

    pant vera með í eró! við getum lært að dansa eins og beó!

     

Skrifa ummæli

<< Home