opnaðu nú skúffuna og fáðu þér kóngabrjóstsykur gæskan
Það er ekki margt sem við getum treyst fullkomlega á í kringum okkur en það sem við leggjum mest traust og mesta trú á er fólkið sem okkur þykir vænt um. Vinir okkar, eru sjálfvaldir ferðafélagar okkar í gegnum lífið, fólkið sem við kjósum að deila sorgum okkar og gleði með. Mér finnst ég svo heppin að eiga svona marga vini sem ég get treyst og hringt í um miðja nótt eða hábjartan dag að kvarta og kveina eða segja þeim gleðifréttir. Það er svo gífurleg sannfæring um að þeir sem ég ákveð að treysta séu þess virði að það er gífurlegt áfall þegar í ljós kemur að sú sannfæring var fölsk. Ég er ekki að segja að ég hafi orðið fyrir þessu nýlega og vinir mínir sem lesa þetta ekki örvænta að ég hafi orðið fyrir vonbrigðum með e-t ykkar.. i´m just wondering.. ég held ég treysti fólki kannski bara um of, geri væntingar sem standast ekki og verð svo óskaplega hissa þegar allir eru ekki fullkomnir.. það eru kannski dulitlar ýkjur. Eins og í fyrsta skiptið sem mér fannst ég svikin .. ég vissi ekki hvert ég ætlaði.. vissi ekki að ég byggi yfir tilfinningunum sem komu upp á yfirborðið... svo eru líka svo undarlegar tilfinningarnar sem fylgja því að kynnast nýju fólki .. hálfgert stress..
Á allt örðum nótum.. ég þekki manneskju.. ætla ekki að segja hvernig ég þekki hana (manneskjuna).. hún er mjög spes.. þarf alltaf að out-shina mig.. í raun ekki bara mig heldur flest alla aðra sem hún þekkir. Þetta er alveg úttrúlega ó ó óþolandi. Ekki það að viðmælandi hennar komist oft að en þegar það gerist þá byrja ég t.d. á sögu um e-ð sem ég hef verið að viðhafast.. ég rétt næ (ef ég er heppin) að ljúka setningunni og þá kemur enn meira spennandi saga um e-ð álíka og ég var að segja nema hún eða e-r sem hún hefur gert það betur!
Hvurnig er hægt að umbera þetta til lengdar??
já og ég er sammála baldvin um að púsl séu kúl og lýsi eftir púsl félaga!
:p

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home