ísprinsessan með súkkulaðifötuna

samkynshneygð

þriðjudagur, júlí 25, 2006

people are strange when you´re a stranger....

mamma mín sem er mjög fyndin benti mér á skemmtilega staðreynd sem ég var ekkert búin að pæla í ..

"... DJÖFULL hef ég verið löt við að blogga....ég segi það bara JESÚS PÉTUR hver svo sum það er ..."

svona setningar í öllum myndum virðast læða sér inn á blogg landsmanna..

but why...
mér finnst oft ákveðinn afsökunnartónn fylgja þessum setningunum og leiðinlegum skýringum sem þeim oft fylgja, eins og fólk gegni einhverri skyldu að blogga oft og mikið, það gera greinilega svona margir ráð fyrir því að þeir eigi stóran lesendahóp sem lætur það fara í taugarnar á sér hvað fréttir og vangaveltur frá viðkomandi berast sjaldan.. and maybe is that is the case
ég er alltaf jafn hissa þegar ég frétti af fólki sem slæðist inn á mína síðu .. er kannski þess vegna ekkert að afsaka mig ef ég læt langt líða á milli...

.
.
.
.
ég fór á leikritið hennar dísu áðan
hún var æðisleg!
til hamingju stelpa!
.
.
.
ég og erlingur synduðum áðan!
þetta var alveg eins og í draumum mínum!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home