ísprinsessan með súkkulaðifötuna

samkynshneygð

þriðjudagur, október 17, 2006

summi, þú kemur næst :p

góðan og blessaðan..
það er búið að vera mikið uppá teningnum lately..
má þar nefna að ég og starfsfélagar mínir í hóp í trú og tákn héldum þennan glimrandi fyrirlestur um daginn.. misstum að vísu af meðmælum stúdenta en það verður bara að hafa það, ég kem næst.
skólafundirnir eru að komast á full blast og vil ég þakka félögum mínum þar gott samstarf so far.
ég fór að heimsækja litlu frænku um daginn með elínu og mömmu og er hún bara mesta monsukrútt sem hugsast getur..














og eins og sést erum við einstaklega sætar saman!! en það segir kannski ekki alla söguna um þetta blessaða barn því er við komum var hún að snæða og þegar því var lokið þurfti móðirin, hún hrund að ganga frá e-u og þá var birna frænka beðin um að halda, stelpan sem hafði verið hin rólegasta fór heldur betur að ókyrrast þegar hún kom til mín og byrjaði í raun að orga af öllum lífs og sálar kröftum! (myndin að ofan af okkur 2 var tekin áður en herlegheitin byrjuðu) þetta fannst þeim voða skondið, langömmunni, ömmunni, mömmunni og mömmu minni, ég verð bara að segja fyrir mína parta að ég var hálf skelkuð.. þetta var bara af því hún var ennþá svöng.. not because of me.. i know it!
gots to love them babies..
ég og elín fórum á date í gær.. dinner and a movie :) takk fyrir samveruna ástin!
ég hef lagst í áhorf ásamt elínu á golden girls! búin að liggja í kasti yfir snilldargáfu þessara kellinga og ég hef sjaldan heyrt betri hugmynd en þá sem erlingur kom með að horfa á þetta í góðra vina hópi með bjór í hönd!
þetta eru þættir síðan 1985 og voru kosnir á emmy hátíðinni sem besta comdey series.. ég get ekki sagt að ég hlæji mikið af bröndurunum.. heldur þessum unaðslegu konum! ein er sko.. dragdrottning.. næstum því og mamma hennar er svo lítil og hún fékk heilablóðfall sem gerir það að verkum að hún getur ekki ritskoðað það sem hún segir, ein er bara hóra.. svona slut.. og ein er heimsk og góðhjörtuð.. semsagt æði!

ég og erlingur outdid ourselves og slógum (að okkar mati) í gegn á dansiballi um helgina og vil ég þakka dansdrottningum kvöldsins kærlega fyrir samveruna og þakka innilega dj skandal á gayball og dj diskókúlu fyrir bestu upphitun í heimingeiminum.. ég er líka bara fegin að skandall lenti ekki í illdeilum, kannski diskókúlan hafi verið of ógnandi fyrir lellurnar sem rífa í hár :p já og ég og erlingur rifum kjaft og var hótað útburði! við fórum svo á cozy og dönsuðum believe it or not! ég dreif mig svo eftir 35 sek svefn í vinnuna og hélt uppi stuðinu í 85 ára afmælinu hennar filippíu! namm kaka!

"ætlaru ekki að borða kökurnar þínar?"

"hvað er ég að gera hérna?"

"það er afmæli"

"núúúú?"

"ætlaru ekki að borða kökurnar þínar?"

"ég vil ekkert þetta drasl" (ýtir disknum í burtu) "áttu ekki lummu?"

þess má geta að hér er ekki filippía sem talar!

þetta er fabjúlös auglýsing sem við létum vinna fyrir okkur.. pro bono ofcourse!

ég sit í tíma núna og ætti þess vegna að hætta .. í bili..

já ég er að fara til ameríku með jóa og lingu.. (linga þýðir typpi á indversku, ha það er skemmtilegt hvað mar lærir í mannfræði)

og við erum að fara á fund í bláa lóninu! should be fun!

1 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home