ísprinsessan með súkkulaðifötuna

samkynshneygð

mánudagur, október 23, 2006

lgbtqq

Ég er ekki eins og erlingur, sit ekki við gluggann og snökti vegna póstmannsins mikla, ég er ekki eins og elín því ég er ekki að fara í ikea eftir skóla að kaupa handklæði, ég er ekki eins og dísa því ég bý ekki í englandi að læra leiklist, ég er ekki eins og summi því ég er ekki að fara að vinna 3 vikur í röð, ég er næstum því eins og jói því hann er að fljúga til ameríku í dag, ég geri það á miðvikudaginn ásamt erlingi, ég er ekki eins og valdi því ég er ekki jafn sykursæt og vinn ekki á nordica, ég er ekki eins og óli því hann fer í kringluna á hverjum degi, ég er ekki að meika kringluna, má taka það fram að hann vinnur þar, ég er ekki eins og baldvin því ég er ekki útskrifuð úr háskóla, ég er ekki eins og mamma mín því hún er að fara að kaupa sér fartölvu, ég á eina fyrir, ég er ekki eins og bróðir minn, ég kann ekki að spila póker, ég er ekki eins og amma mín því að ég er ekki í heilsuferð á kanarí með bestu vinkonu minni og ég er ekki meistarakokkur og bakari, ég er ekki eins og móðursystir mín því ég er ekki að kaupa mér íbúð, ég er ekki eins og stóra frænka sem er búin að læra svo mikið í stærðfræði að ég skil ekki einu sinni hvað hún er að læra, ég er ekki eins og karen því hún er svo ótrúlega dugleg að læra, ég er doldið eins og alma, hún situr í mörgum stjórnum og á ættir að rekja til færeyja þetta eigum við sameiginlegt, ég á semsagt færeyska langömmu, ég er ekki eins og litla frænka mín, því ég er komin með nafn, ekki hún og ég er líka ógó miklu stærri en hún og ekki jafn mikil monsa, ég er ekki eins og konan í tíma sem er að tala núna um hvernig má bæta stöðu kvenna og barna með kristniboði í gegnum biblíuna og trúnna, ég hef ekki skoðun eða vit, ég er ekki eins og guðjón því ég klúðra hlutum, ég er ekki eins og arna því núna er hún eina stelpan sem hefur umsjón með ungliðahóp samtakanna 78, einu sinni var það ég, ég er ekki eins og gummi because he can work his magic on a machine and make it come, ég er ekki eins og arnaud því hann gengur mikið í skyrtu með bindi.
Ég á nokkur mottó í lífinu, eitt af því er að fara ekki í karókí, ég held að mottóið sé til komið því ég þori barasta ekkert að fara í karókí, gott að geta falið sig bakvið mottó, annað er að fara ekki í skyrtu og bindi, bara stórt nei nei, kannski er það bara af því ég myndi ekki taka mig vel út þannig, kannski af því ég bara meika það ekki,
Ég þekki ekki marga í mannfræðihópnum mínum með nafni og þó..
Við erum að fara að hlusta á fyrirlestur um kristni í Afríku, en ekki alveg strax samt.
Mig langar svo í tívolí í ameríku, en vitrir menn hafa sagt mér að opnunartímar séu árstíðarbundnir, við komum á vitlausri árstíð. Ég elska að láta hræða úr mér líftóruna í svona rússíbönum og tækjum, turninn í danmörku er einn sá besti, eftir að hafa öskrað og blótað á leiðinni upp á topp, sagt samferðakonum mínum að fokking þegja og ekki snerta mig, fannst mér ótrúlegt að fá að húrra niður og aftur upp vitandi það að það yrði alltílagi með mig, láta hífa mig uppá topp á e-i grind í kerru ásamt fullt af hressu fólki sem er oftast ekki að látast úr hræðslu og fá að þeytast í hringi, afturábak og áfram .. oh mér finnst það best.. ég er ekki að sætta mig við það að eini svona amusement park sem er opinn í portland er hjólaskautahringur eða e-ð álíka! Við ætlum samt að fara að fá okkur pie!
Þegar ég flyt út langar mig að fá svona hvítatöflu í eldhúsið mitt og fá svo baldvin, erling, arnaud og kára reglulega í heimsókn til að gera skemmtilegar persónur á töfluna og gefa þeim persónuleika með hnyttnum frösum og settningum, mér er minnistæðastur osram bin laden, hann var nú samt þögull sem gröfin. Rassin hans kára var ókeypis þar á tímabili, stanslaus skilaboð um þvottinn, hreingerningar, komu og farartíma milli eot og bks, oftast er það nú bks sem ráðskast með eot, eot er nú yngri! Mikil heimilisstemning á þessum vegg, gefur íbúðinni meiri karakter heldur en öll málverk og veggspjöld til samans, hvar annars staðar er haldið partí með þemanu bleikt og blátt. Í eldhúsinu bökuðum ég eot og eta ógó góða köku.. þetta er farið að verða e-r óður til fálkagötunnar! Am in love with them,, ??
Það hafa nú verið good times í neðra skipholti líka, þar hafa margir mætt í partí, lent í ástarsorg, sofið hjá, kastað upp, haldið uppá pride, kynnst ástinni, lanað, glápt á skjávarpa, haldið matarboð, gist eftir djamm, farið á trúnó, brotið glas, farið á kojufyllerí, kynnst nýju fólki ofl ofl,
Ég og mitt breytingarskeið, það var að koma yfir mig algert hitakóf, ætli það bætist ekki í hóp uppreisnarhára á kollinn á mér, mér er orðið volgt aftur!!!!! Ég er 22 ára, hitaköst og grá hár eru ekki á dagskrá!oh jæja! Sumir eru svo leeeeiðó, ég skil ekki áráttu fólks að velta sér uppúr einhverju sem öllum öðrum er sama um, segja kannski sama hlutinn 2svar og svo í þriðja skiptið er leitað til manns eftir samsinni.. þá langar mig bara að ulla á viðkomandi, reka tunguna sem leeeengst út til að sýna leiði mína og líta svo í burtu, en auðvitað er búið að ala upp í mér ákveðna kurteisi svo ég kinka kolli og jáa á innsoginu, jhhá! Það vita t.d. allir að tíminn okkar er búinn kl X, kennarinn mismælir sig um kannski 20 mín, allir leiða það hjá sér því nokkuð augljóst er að þetta voru saklaus mistök, en halló velta sér uppúr því og spyrja sessunauta sína eftir vangaveltur með vafasvip og fá þetta nhhei eða jhhá! Ugh!
Það var svooo gaman í gær hjá mér og eta, bara sjaldan skemmt mér jafn vel!!!
Helgin var almennt róleg sökum bakverkja.
Eftir veru mína á vinnumarkaði á Íslandi var ég búin að missa svoltila trú á yfirmönnum, þetta voru ekki mannlegir einstaklingar, með undantekningum þó, sem höfðu lítinn skilning á högum og þörfum starfsmanna sinna og voru bara bitches, nú hafa hlutirnir heldur betur snúist við því yfirmaður minn í dag kom mér í opna skjöldu mér viðmóti sínu og hjálpsemi, þessu hafði ég ekki kynnst áður og var eiginlega bara orðlaus! Ég veit ekki hvort ég náði að koma því til skila hvað ég var þakklát!! Takk!
Café, fræðslufundur, movie tonight! Hvar er árbærinn annars? Blessuð landsbyggðin!
... spot the maniac! Verðlaun í boði!

3 Comments:

  • At 12:53 e.h., Blogger Lingur said…

    Jiiii, I am not a maniac! I am a human being!

    En ég skil nú ekki þessa hræðslu við skyrtu og bindi. Ég meina, Arnaud tekur sig svo vel út í þessu! Þú ættir að prófa, elskan. Og hvaða betri staður fyrir svoleiðis en einmitt Ameríka? Þar eru allar lesbíur í skyrtu og með bindi. Spurðu bara L-word.

    Svo vildi ég líka láta þig vita að ég er að safna saman "best of" taflan. Búinn að taka nokkrar mjög skemmtilegar myndir af hetjum töflunnar, svosem Osram, Rassmus og Kartöflumus ofl sem ekki er hægt að nafngreina hér að svo stöddu. :D

     
  • At 7:05 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    já þetta var svoooo skemmtilegt kvöld, við verðum að endurtaka það sem fyrst ;)

     
  • At 9:47 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    cheeky girl :) I like it

     

Skrifa ummæli

<< Home