ísprinsessan með súkkulaðifötuna

samkynshneygð

mánudagur, júlí 24, 2006

i can´t wait

Það fer hrollur um mig alla!
Eftir nokkra daga ætla ég að vakna súper snemma, fullvissa mig um að allt sem nauðsynlegt og ónauðsynlegt er sé komið ofan í tösku og vegabréfið og debetkortið séu í svörtu töskunni ásamt geislaspilaranum með madonnu disknum í.
Því ég er að leggja upp í ferð, ekki alveg langferð en algera draumaferð ásamt fríðu föruneyti. Eins og þið sem umgangist mig e-ð ættuð að vita er ég að fara að sjá dívuna madonnu á sviði. Ég hélt aldrei að ég fengi að gera nokkurt slíkt. Ferðafélagarnir er mín heittelskaða lingerine og summerteam. Við fljúgum til london fáum að eyða 2 góðum dögum þar. Yndislegt! Tökum svo the morning train til cardiff til þess að bíða í röð til að komast sem næst dívunni. Hún vill ekki hafa loftkælingu á tónleikunum því það fer svo í taugarnar á röddinni hennar. En yndislegir dívustælar... æði! Svo höldum við í sæluvímu aftur til london það sama kvöld til að hvílast fyrir morgunflugið til noregs þar sem íslendingar munu sameinast á meðal norsara því þar munu bíða okkar jói kalli bimbó, arnaud, guðmundína og gunni sæti. Við munum dvelja átta saman meðal gamalla kunningja sem kunna að sletta úr klaufunum á alla máta!
Þegar heim er komið er ekki langt í pride, bara nokkrir dagar!
Ég elska ágúst
Ég elska Elínu
Og ég elska Valda og Óla og mun sakna þeirra!