ísprinsessan með súkkulaðifötuna

samkynshneygð

mánudagur, febrúar 13, 2006

silvíuhelgi

Eins og sést hér fyrir neðan var mega sega stuð um helgina, dj-bling og co voru bæði hot, sexy og fabulous. 16 ný-handkreistar appelsínur fengu þann heiður að hitta fyrir smirnoff og var sá kokteill mjög náinn dj-bling og fjölskyldumeðlimum þeirra þetta kvöld! Eftir heimatilbúið drykkjuspil á Fálkagötu 5 héldum við sem leið lá í póstnúmer 101 í kjallarann til systranna fræknu. Gerðum í raun innrás en það var vinsamleg yfirtaka sem átti sér stað og báðar þjóðir lifðu í sátt og samlyndi. Skyldan kallaði, þ.e.a.s. Erlingur kallaði, og var ekkert annað í stöðunni en að drífa sig á ballið til að koma stuði í liðið sem sá sér fært að mæta við opnun! Það gekk ógó vel, við dönsuðum kannski meira sjálf en gestir okkar eeen vorum í leið kannski ágætis athugunarefni fyrir nema í Hinsegin lífi og hinsegin baráttu sem mætt voru á staðinn í vettvangsrannsókn! En þegar liðið var búið að drekka í sig hugrekki stóðst fólk ekki mátið og fór að dansa við the fab bling music ;p og loks þegar dansgólfið var virkilega farið að iða af stuði og gleði var okkur steypt af stóli samkvæmt samningi! Við samt AUÐVITAÐ tókum dans við “our signiture final song” (verðið bara að mæta á ball til að komast að því hvað það er). Dönsuðum og dönsuðum svo því dj-dagný er barasta geggjað góð! Áfram þú dagný! Við náðum að skjótast á barinn og settumst upp í loungue-ið í slökun vegna eftirvæntingar “leynigestarins”! í stanslausum dansi var klukkan ætíð að nálgast 2 en ekkert bólaði á fyrirpartíinu sem ég yfirgaf svo snögglega. Við allavega röltum niður á fyrstu hæð, alveg í startholunum sem móttökunefnd :D og sáum þá glitta í Valda í troðningin f utan, og þarna var Silja og Óli, Una? Elín og Helga? Gummi.. Jói..Summi... wtf hvað voru þau að vesenast! Mér leið ekki vel að geta ekki gert í þessu .. omg omg svo hringdi síminn.. OMG. Við fórum út, gengum fyrir hornið where she was arriving. Fólk fyrir utan Pravda og Hressó horfði inn í bílinn eins og David og Victoria Beckham væru að koma. Hvísluðu sín á milli að þarna væri komin Silvía Nótt og þegar út úr bílnum var komið var öskrað og ánægju sinni yfir henni líst með ástarjátningum og öðrum hlýyrðum. Mér leið mega VIP að vera sú sem var að fylgja henni inn, tók létt um axlir hennar og sagði “Silvía hérna inn”. Með lýsingu í augun og myndavél á eftir okkur fylgdum við the star inn bakdyramegin.. í alvöru.. þetta er í eitt af fáum skiptum á ævinni sem ég hef verið svona “star-struck” .. þegar upp í lyftunni var komið kynnti Palli gorgeous gelluna á svið. Ég stóð hönd í hönd við sæta stelpu, með frosið brosið og dillaði mér stöðugt opinmynnt við þetta show! Í einu orði sagt absoloutely-fabulous!!! Þrátt fyrir hausverk og þreytu dönsuðum við þangað við dropped, eða elín did, hún dansaði allavega af sér skóna :p ½ dj-bling hélt heim á leið í sæluvímu en restin af strákunum mínum vildi fara á pravda. Eftir að hafa séð um viskí pela í smástund og spjallað við de danske pige héldum ég og skólausa stelpan mín heim á leið! Unaðslega yndislegt kvöld í alla staði!
Sunnudagurinn komst í sögubækurnar því ég fékk frí frá ungliðakvöldi í fyrsta skipti í svo langan tíma að ég vil ekki vita það, a part from þegar ég brá mér til útlanda. Eftir að hafa velkst í vafa um endurkomu frunsu nokkurrar og veltst um í letikasti var ferðinni heitið heim þennan sunnudag.. sætu stelpurnar á hrafnistu heimsóttar með nammi í för, enda var skipunin, come only with candy! Síðan var Lingur “wrapped in a blanket” heimsóttur, og síðan millibilið í L-word skoðað! Aftur gerðust þau undur og stórmerki að klukkan sló hálfþrjú í sæta kjallaraherberginu. Ég held eftir miklar athuganir í morgun að ég sé heilbrigð á sál og líkama og vörum :D jibbí jei!! Knock on wood, 7, 9 , 13!!
Takk fyrir æðislega helgi guys! Nú er bara að hlakka til 18!! Hvernig er stemningin fyrir þemakvöldi. Ef svo er er Elín búin að panta Silvíu, ég er að spá í að vera Sigga og þið strákar mínir getið verið hommi og nammi í hotpants og svo venjulegum buxum!
Say whaaat? Duduruuu.. i´m loving it!

Birna –leynilega mcdonalds fetish- Hrönn a.k.a. ½ dj-Bling!

2 Comments:

  • At 10:54 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Við biðum geeðveikt lengi í röðinni :( hefðum átt að fara á sama tíma og þið, ég vildi það en jói og krökkunum fannst það óþarfi, hlusta á mig oftar! hehe en takk fyrir æææðislega töff helgi skiluru, sjáumst! gummi

     
  • At 10:35 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég og Silja meikuðum nú ekki að bíða þarna að eilífu svo við ætluðum bara að gefast upp og fara en lentum svo heppilega á að hið yndislega fólk, lingur og Bierna, voru baka til að hleypa Silvíu Night inn svo við þóttumst bara vera partur af Silvíu Night genginu og redduðum okkur inn, FRÍTT og með Silvíu Night í lyftunni, sú sko dettur ALDREI úr karakter... svooo skondið! En já takk guys fyrir snilldar helgi ;)Heyrumst fljótlega!

     

Skrifa ummæli

<< Home