ísprinsessan með súkkulaðifötuna

samkynshneygð

mánudagur, febrúar 20, 2006

it´s hip to be square!

sko er búin að vera að velta mikið fyrir mér orðinu tilviljun.
orðin destiny og faith hafa dottið upp í hugann líka en .. þau eru e-ð svo of dramatísk.. ég held að ég haldi mig við tilviljun, ég get því miður ekki rakið söguna sem kom þessum hugsunum af stað því hún er barasta einum of persónuleg ..en ef þið pælið í þessu, takið einn atburð eða dag sem ykkur er mikilvægur og rekið sögu hans aftur á bak og áfram og reynið að finna e-ð í framhaldinu sem er bein afleiðing þessa.. eða e-ð í fortíðinni sem leiddi einmitt að þessu mómenti.. ég hef nú ekki verið að gefa mig út fyrir að trúa á örlög, þetta eru allt tilviljanir sem stjórnast af okkur og öðrum í kringum okkur..
ég er svona .. ekki alveg viss með tilviljanirnar sem eru búnar að umkringja mig upp á síðkastið, er að vísu ofsalega ánægð, en svo er líka svona smá fígúra í hausnum á mér sem segir "hvað ef".. hún fer samt minnkandi,. ætli að "closure" sé ekki bara málið! allavega ekki leyndarmál!

fyndið að ég hafi verið með einum af mínum bestu vinum í dag í skóla í 4 ár... við ekki sagt eitt stakt orð okkar á milli en í dag erum við óaðskiljanleg.. ætli við höfum ekkert átt að vera vinir in the past..? værum við þá kannski ekki vinir í dag útaf e-u brjáluðu rifrildi sem hefði komið upp? hmm

að ég hafi óvart byrjað að tala við dísu en ekki e-a aðra þegar ég átti engar vinkonur í byrjun fyrstu annar í mh.. whats that about? að þessi stelpa hafi svo orðið mín stoð og stytta og frábær vinkona, þá hefði ég örugglega aldrei vakið foreldra mína með öskrum við að horfa á jaws með dísu inní stofu, eða lagt upp í langferðir á laugavatn .. hvernig ætli það sumar hefði orðið?

eða ef ég hefði verið sett á aðra deild á hrafnistu þegar ég sótti um þar, ég væri að fara á mis við gyðu, emmu, elsu, ingibjörgu og hefði aldrei endurnýjað kynni mín við dagnýju, ætli við værum ekki að heilsast vandræðalega eftir þennan impromt koss úti á götu.. ég myndi heldur ekki vita hvað misrétti á vinnustað væri og stæði eflaust ennþá í þeirri barnslegu trú að vinnustaðir væru alltaf réttlátir og mætu fólk að verðleikum eingöngu..

ef ég hefði ekki kynnst dísu hefði ég þá kynnst antoine? hefði ég þá aldrei kynnst dóru og allt í einu eignast kærustu þegar ég var 17?

ef við hefðum vitað að við þyrftum að gista í tjaldi á áfengislausri eyju í noregi áður en við borguðum skráningargjöld hefðum við þá farið? og ef við hefðum ekki farið hefðum við aldrei kynnst rauðhærðu dömunni og vinum hennar, þá myndum við ekkert vita hverjir pay-tv væru og ég ætti ekki webcam, ef við vissum ekki hverjar pay-tv værum við þá að reyna að fá þær til að skemmta í sumar... i think not!

ef ég hefði ekki tekið að mér að sjá um fræðslustarf myndi ég þá vita að það eru foreldrar sem banna börnum sínum í tíunda bekk að sitja í tíma þar sem fræðsla um samkynhneigð og samtökin ´78 á sér stað? árið 2006 btw...

æj mér finnst svona pælingar svo skemmtilegar.. luma á mörgum fleiri.. þarf samt eiginlega að fara að gera e-ð uppbyggilegt.. helgin var great! stelpa sem ég þekki brá sér í gervi silvíu nætur, heví hot sko.. horfðum á thelmu og louise á ungliðakvöldi.. gotta love it.. og omg, svo horfðum ég og elín á the notebook.. ég sver ég get ekki haldið aftur af mér þegar ég sé þessa mynd, fór að hágráta .. ji minn.. mæli með henni! vonum bara að þessi vika verði fab og að stjórnsýslukæran fjúki út í veður og vind !!
ég kveð ykkur lesendur góðir með spekingslegan frasanum sem var svo skemmtilega íslenskaður að ég held af honum haffa:
Það er mjöðm að vera ferningur!

já og ein önnur pæling,
hafið þið velt fyrir ykkur hvað það þýðir að "hlaupa undir bagga" eða "að ríða baggamuninn"?

4 Comments:

  • At 8:35 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    durum durum durum durum....elska jaws... ég held í alvöru talað að ef þú hefðir ekki kynnst mér þá ættiru engar vinkonur, værir ekki svona sæt, ekkert fyndin, ekkert lovable og totally ekki gay....hvað heldur þú? muhahaha :) Koddu að djamma...dísa

     
  • At 12:15 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    i couldn´t agree more! u put the trend in trendy and the ass in .. hihihi ...+o( djamma? ég er í djammfríi skiluru.. en far þú að finna eitt stykki ósamkynhneigðan karlmann.. haha
    birna ýkt kúl

     
  • At 12:06 f.h., Blogger Lingur said…

    Ósamkynhneigðir karlmenn? Eru þeir til? Það væri nú tilviljun!

    En annars þá eru þetta mjög skemmtilegar pælingar, Birna mín! Þú vekur mann svo sannarlega til umhugsunar. Mér finnst að þú ættir að skrifa bók! Really!

     
  • At 1:01 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Svo sammála Lingi með bókina, myndi bókað kaupa hana sko!!! og Birna já þú ert ýkt kúl mvohohoho

     

Skrifa ummæli

<< Home