ísprinsessan með súkkulaðifötuna

samkynshneygð

mánudagur, maí 22, 2006

núna nærðu skjá einum á rás 9 eða 10 á digital ísland

Ég sit í eldhúsinu mínu og horfi útum gluggann á meðan ég pikka inn og borða núðlur úr mjög svo ferköntuðum pakka, síðastliðnar vikur hafa verið alveg yndislegar og er merkilegast frá því að segja að ég er byrjuð aftur að vinna á mínum undursamlega vinnustað og kann svona afskaplega vel við mig, ætli það megi ekki þakka gamla fólkinu og þeim svörtu sauðum sem hafa látið sig hverfa. Þótt mikill sé söknuður vegna Ingibjargar, Emmu, Gyðu o.fl. virðist “nýja” fólkið vera svona assgoti ágætt að ég held að þetta verði bara hið besta mál.

Ég fór eins og hver annar velþenkjandi Íslendingur á eurovisionballið hans Palla á Nasa um helgina og það var ekkert smá stappað og rosa fjör. Ég verð þó að furða mig á dónaskap meðlima íslensku “elítunnar” sem voru stödd á þessu balli. Greinilega skapar það einhver forréttindi að vera í sjónvarpsþætti einu sinni í viku og koma í séð og heyrt á einhverri ógó kúl útgáfu á plötunni símahrekkjum simma og jóa.. já ég bara eins barnaleg og ég er hélt að íslensk frægð væri bara eiginlega ekki til .. hvað þá íslenskir stjörnustælar.. ég fékk allavega meiri dýpt í karaktersköpun Silvíu Nætur.

Talandi um Silvíu Nótt.. þrátt fyrir dónaskap, grátandi börn og almenn fíflalæti er hún ennþá mín kona! Ég er ósammála þeim sem fannst hún ganga of langt í viðbrögðum sínum við tapi í undankeppninni.. það hefði verið algerlega úr karakter ef hún hefði tekið þessu vel og ekki gert neitt veður útaf því.. það hefði sjokkerað mig!

Ég er ekki hrifin af Carolu hinni sænsku! Hún má bara láta þessa blessuðu vindvél feykja sér eins langt og augað eygir!

Ég fæ frí á laugardaginn til að kjósa! Það verða allir að fara að kjósa, nema að sumir ætli að kjósa vitlaust, þá er um að gera að sleppa því :p

Jæja ég ætla að fara að koma góðum fréttum til stelpunnar minnar.

5 Comments:

  • At 10:39 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    X- Ugla, ójá.

     
  • At 10:16 e.h., Blogger Lingur said…

    Hver var dóni? Ég missti alveg af því!

     
  • At 3:43 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    hver var dóni!!?
    nú baldvin kári, gaurinn úr hjartslætti á skjá einum hérna um árið!
    þvílík díva!!!

     
  • At 10:13 e.h., Blogger Lingur said…

    Jiii, geturðu ímyndað þér hvernig það væri að umgangast hann dagsdaglega? Það hlýtur að vera ömó pömó skiluru!

     
  • At 10:18 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    jááá gvöð! það hlýtur að vera 100% vinna, ég hef heyrt að mamma hans borgi meðleigjandanum hans fyrir að leigja með honum!! hvaða fallega sál ætli hafi sæst á það líferni! e-r mjög falleg sál!

     

Skrifa ummæli

<< Home