ísprinsessan með súkkulaðifötuna

samkynshneygð

mánudagur, mars 20, 2006

call of the wild

Vitiði mér líkar barasta mjög vel við lífið núna nýlega, á ég það mörgum að þakka og vil ég þakka þeim aðilum núna. Takk.
Helgin var ósköp skrautleg.. allavega laugardagurinn..laugardagskvöldið!
Fór á mjög skemmtilega tónleika á föstudagskvöldið með Dísu, Naomi, Helgu og Elínu.. skemmti mér konunglega en þar sem þreytan var svo mikil að ég stóð varla í lappirnar dreif ég mig heim og var sofnuð fyrir eitt.. Stelpurnar mínar verða nú að fá hrós fyrir að kunna að skemmta mér .. tihihi, þær kunna allavega að syngja með og dansa like no other!! Ekki einu sinni Yasmin Olson eða sen.. ?

-daylight lick me into shape-

Fyndið hvað það er alltíeinu svona gaman að hlusta á tónlist... surden kind of music.. tihihi

Gaman hvað sumir kossar ná að koma fiðrildum fyrir í maganum og sumir í maga, handleggjum, fótum .. bara útum allt.. mér finnst það unaðslegt

Sú sem ég óttaðist að væri kannski horfin af yfirborði jarðar skaut blessunarlega upp kollinum and is a ok! En e-r sem ég hélt að væri blessunarlega horfin af yfirborðinu skaut upp kollinum mér til ómældrar óánægju!

Mér finnst block takkinn á msn sniðugur og viðurkenni hér með að ég nota hann, en yfirleitt aðeins í neyðartilvikum! Hvernig ætli væri hægt að flytja þann möguleika yfir í raunveruleg samskipti! Gæti bara eyrnamerkt manneskju þannig að ég væri henni (manneskjunni) ósýnileg og þau hljóð sem bærust frá henni bærust mér allavega ekki til eyrna.. ég sé hvernig þetta gæti orðið snúið .. eigum við að pæla í einu scenario.. hmm
Ok .. ég spilaði það út í huganum .. gekk varla upp.. gæti skapað alls konar misskilning, vandræði.. þetta er flókið en ég kasta þessu fram til ykkar sem gætu kannski gert þetta að raunveruleika..

Call of the wild með gus gus .. orð fá því ekki lýst .. !!! oh my gosh!!

Ég bauð mig fram ásamt Elínu að vinna í miðasölu á Góugleði KMK (konur með konum) okkur var boðið í mat sem reyndist lostæti.. og gott kaffi! Framvinda kvöldsins var ósköp skringileg (eins og við er kannski að búast á kvöldi þar sem eru “women with agendas”) í raun urðum við, ég og Elín, bara partur af einni agenda, en þvílík agenda.. það átti sko að stinga undan mér big time, og það beint f framan nefið á mér! Jih ég átti í raun ekki orð, bara hláturinn og undrunina.. veitti það mér huggun að ég var viss um að minni stelpu þætti ég langtum betri kvenkostur en sú fyrrnefnda og ætli það sé ekki þess vegna sem mér fannst þetta skondið .. kannski frekar grátbroslegt.. hmm f ykkur sem hafa komið á Kaffi Reykjavík var þetta á annarri hæðinni, í raun sátum við aðeins f utan salinn sem girtur var af með gagnsæjum tjöldum.. þannig var í pottinn búið að í hvert skipti sem ég sá ástæðu til að stíga úr miðasölu stólnum mínum var “predatorinn” komin við hlið elínar.. og í hvert skipti sem elín brá sér frá var hún elt.. híhí.. “... ég verð nú að viðurkenna ég er fallin doldið f þér.. úps hér kemur konan þín...” þetta er nú dulítil ósvífni .. og ekki bara við mig heldur elínu líka og kærustu stelpunnar.. jáms.. kom mér á óvart líka.. en já .. svona geta lesbíur verið skondnar.. við sáum í raun ekki aðra leið út þegar ballið var búið en að HLAUPA út til að sleppa úr klóm þeirrar þrjósku :p áður en það gerðist ákváðum við að shina okkur inne på badeværelset.. þangað var hún audda mætt og allan þann tíma er við dvöldum f aftan luktar dyr var barið á þær.. ísk.. eftir að barsmíðarnar voru hættar settum við í fimmta og sprettum eins og á óló útaf klóstinu, niður stigann, útum aðaldyrnar, útað næsta horni og valhoppuðum frelsinu fegnar í leigara sem ók okkur rakleiðis til Gumma æði!
Ætli þrautseig sé betra viðurnefni en þrjósk?! Nú spyr mar sig!

Oooog við hittum fyrir predatorinn af ballinu þar á undan! Ég var kannski ekkert búin að minnast á hana.. hún var nú samt verri þá og skárri um helgina þar sem hún bauð góða kvöldið og vonandi skammaðist sín f fyrri hegðun gagnvart saklausum litlum telpum! Hmpf :D

I think drama loooooves me! Hmm i don´t think .. i know!

En ég verð nú að viðurkenna að ég er dottin í blogglestur.. big time stundum .. og svo virðist að lesbíur þessa lands séu ósköp dramatískar.. kannski er það ekki bara ég ..

Það var geggjað stuð hjá Gumma eftir blessaða Góugleðina! Sátum að sumbli fram undir morgun og ég verð bara að segja að ég hef örugglega aldrei áður upplifað jafn geggjaðan sunnudagsmorgun í lífinu!! Vahá!! Veistu jih!
Nú er allavega mánudagur.. og ég er að hlusta á ótrúúúúlega viðeigandi lag “... i still have last night (ekkert okkar var farið að sofa svo tæknilega var morguninn night .. ) in my body.. wish you were with me.... “


I didn´t know you had it in you giiiiirl!

Jæja er að fara í svo skemmtó heimsókn á eftir að ég ætla að fara að gera mig pretty, oh so pretty and witty and .. hmm yes..

1 Comments:

  • At 1:10 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    sjáumst á næsta balli....

     

Skrifa ummæli

<< Home