ísprinsessan með súkkulaðifötuna

samkynshneygð

mánudagur, apríl 24, 2006

samkynshneygð

Ég var að lesa sögu á netinu á e-a svona raunveruleikasöguvef.. fékk linkinn sendan en náði svo að eyða því og fann hann ekki aftur svo ég get ekki deilt honum með ykkur EN ég get gefið ykkur nokkur dæmi um sögurnar sem ég las! Margar ansi skuggalegar og í raun engin staðfesting á hvort að þær séu sannar..

Það var einu sinni húsmóðir, greinilega langþreytt af lýsingunum að dæma, sem fór í æðiskast eftir að hafa komið úr súpermarkaðnum og það var ekki til e-ð sem hún ætlaði að kaupa.. hún keyrði víst á hús e-ð vegg.. she´s fine today.. fór víst í meðferð.. aumingja hún og bóndinn..

Og það var maður sem fór í fallhlífarstökk og dó.. hann skrifaði víst ekki söguna sjálfur..

Svo þar það saga sem vinur e-ar gellu hafði skrifað um hana.. þau voru víst frekar góðir vinir, svo landar hún kærasta og hann er doldið jealous í fyrstu en eftir nokkra mánuði verður það peace of cake af því hann er kominn með kæru og var ekkert að bögga sig yfir því! Þau voru ógó góðir vinir og fóru á trúnó einu sinni á dag , basicly gátu sagt hvort öðru allt. Með tímanum verður kærasti vinkonu hans e-ð abbó eða óöruggur yfir þessari vináttu, hefur talið sjálfum sér trú um að höfundurinn sé að reyna við kærustuna sína og setur á hana bann, andlegt og líkamlegt bann á samskipti milli þessara tveggja vina.

Jih en ótrúlega lítil sálin í honum greyinu að vera svona vitlaus og þegar ég las þetta þá hugsaði ég nú bara að hún myndi nú neita þessum skilmálum.. og hélt áfram að lesa..

Já hún semsagt neitar þessum skilmálum hans en þá fer kallinn víst bara ennþá lengra og hótar að hætta með henni ef hún fer ekki að hans kröfum... haldiði ekki að stelpan hafi fallist á þetta og hringt flóttaleg í gaurinn til að segja honum hvernig málum væri nú háttað, hann hló að henni, sagði henni að þegja í góðu gríni og spurði hvort að þau gætu hist á eftir til að velja gjöf handa kærustunni hans, hún sagði flóttalega í símann að hann væri að koma heim og skellti á. Hann verður mjög hissa og hringir í hana til baka en hún skellir alltaf á.. hann tekur þá upp á því að senda sms um hvað væri eiginlega í gangi og fær e-ð til baka sem hann vill ekki endurtaka í sögunni en segir að það hafi verið “so nasty and cruel that i just started to cry” hmm e-ð mega greinilega .. til að gera langa sögu stutta reyndi hann að ná kontakti við hana í meira en ár eftir þetta og áttu þau stundum leynilega fundi þegar gaurinn hennar var vant við látinn.. svo á endanum nennti hann þessu ekki lengur, var farinn að “soulsearching” og varð bara meira pissed yfir hvað hún væri í raun vond manneskja fyrir að gera honum þetta.. eftir að hafa sent henni (hahaha veraldarvæðing.is) e-ð message á myspace (svo inn núna) og fengið flóttalegt svar til baka þá bara cöttaði hann á tilraunirnar til kontakts.. mig minnir að hann hafi sagt að hann hefði ekki talað við eða séð hana í ár eða e-ð .. mjög sad..

Jæja nóg frá amríku

Dj bling var alveg í fíling í gær og hrósum er þegar farið að rigna yfir okkur :p það er svo fyndið að vera dj.. ég hef nú sótt svona böll í all langan tíma og fundist bara mikið stuð, það er doldið drama sem virðist einkenna svona skemmtanir og ef það ert ekki þú sem ert með dramað er það hjá hinum bara handan við hornið. Í gær vorum við stödd allt kvöldið upp á sviði, overlooking the dancefloor og setusvæðið og stigana og allt. Það var svo gaman að fylgjast með ný mynduðum pörum, pörum sem voru nýhætt saman og ætluðu sko að sanna sig fyrir hinum aðilanum, olgu lesbíu, erótískum dönsum, viðbrögðum hinna við erótísku dönsunum og elsku mh-ingunum sem eru að fikra sig út úr skápnum og eru að upplifa allt ballið, mömmu hans erlings að syngja með við xanadu, öllum að þykjast vera silvía nótt að tala í símann í laginu hennar, öllum fab hækjunum, olgu lesbíu.. ég var búin að segja það og auðvitað spegilmyndinni minni þegar ég var að dansa.. haha djók, eins og svo margir vita finnst mér mjög erfitt að horfa í spegil á almannafæri !

Við fórum í sumarbústað um páskana, við spiluðum scrabble og dj bling diskana, fórum m.a. í “búa til dans leik” í heitapottinum með furukönglabubblunum og “hvort viltu frekar sofa hjá” leiknum sem endaði að vísu í smá drama þegar okkar fína forsetafrú sat undir skotum frá “boðflennu” herbergisins sem skildi sko ekki leikinn og náði allavega ekki að endurtaka þann leik að gista í sömu koju og ég þrátt fyrir fullt af plássi útum allt hús! Svo lét Erlingur mig opna páskaeggið mitt aðfaranótt sunnudags og þegar ég vaknaði daginn eftir var ekkert svo mikið eftir, ég má þakka fyrir að hafa getað sleikt smá súkkulaðiagnir af unganum, sem var btw rangeygur! Elín sæta er að koma heim á morgun, unaður! Svo er ég að vinna í því að gera vini mína að stjörnum og so far hefur það tekist með höllu naomi og helgu! Jei og bróðir minn líka!

Mér finnst fólki svo tíðrætt um töffaraskapinn sem virðist vera að taka yfir Reykjavík og alir keppast við að hlusta á sem skrítnasta tónlist og hafa þeim mun skrítnara viðmót til lífsins og eru án efa listrænir á e-u sviði eða öðru. Þessu hef ég heyrt fleygt fram og ég gæti nefnt dæmi en ég yrði örugglega slegin með sleggju í andlitið og af því teknar myndir svo stúlkan sú gæti túlkað reiði sína tihihi.. nei nei ég er bara svona að spá ..

Hafiði séð myndbandið með “the dark sided” konunni sem er “soldier of christ” .. ég held að óli daði hafi sagt að ef mar gúglaði “crazy woman” þá kæmi hún upp

3 Comments:

  • At 6:04 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    hæ ég er líka samkynshneygð
    :)

     
  • At 6:16 e.h., Blogger Lingur said…

    mér finnst að þú þurfir að fá vinnu við að skrifa, you're a born writer! ekki í gríninu hérna sko! :)

     
  • At 10:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Tykir leitt ad heyra tetta med paskaeggid titt. tu sem slost oll met herna i gamla daga med ad koma eggjunum tinum a ellilifeyrisaldurinn.
    Gaman ad fyljgast adeins med ter, your looking good.
    venlig hilsen Asta Birna

     

Skrifa ummæli

<< Home